Eyrir Invest hf. hefur selt 15 milljón hluti í Marel hf. Í tilkynningu kemur fram að viðskiptin auki sveigjanleika í rekstri Eyris og styrki hluthafahóp Marel. Markaðsviðskipti Landsbankans gerðu Eyri kauptilboð fyrir hönd MSD Partners, L.P. sem kaupa hlutina á 285 krónur á hlut.
Með viðskiptunum verða MSD Partners sjöundi stærsti hluthafi Marel. Eyrir er eftir sem áður stærsti hluthafi Marel með yfir 200 milljón hluti eða um 27,2% af útgefnum hlutum.
„Eyrir Invest er langtímafjárfestir og hefur verið kjölfestufjárfestir í Marel síðan 2005. Marel starfar samkvæmt langtímastefnu sinni og nýleg kaup félagsins á MPS heppnuðust vel. Eyrir hefur mikla trú á möguleikum Marel til áframhaldandi vaxtar sem og getu félagsins til að skila góðri afkomu. Eyrir hyggst áfram vera kjölfestufjárfestir í Marel,“ segir í tilkynningu.
Í framhaldi af viðskiptunum hefur stjórn Eyris Invest heimilað stjórnendum félagsins að innleysa B-hluti félagsins.
Þá segir að fjárhagsstaða Eyris sé sterk og að stefna hans sé að styðja við alþjóðleg iðnfyrirtæki og sprotafyrirtæki í vexti.
MSD Partners, L.P., sem skráð er hjá SEC í Bandaríkjunum sem fjármálaráðgjafi, var stofnað árið 2009 af eigendum MSD Capital, L.P. til að gera lokuðum hópi fjárfesta kleift að taka þátt í fjárfestingum sem MSD Capital skipuleggur. MSD Capital var stofnað árið 1998 til að stýra eignum Michael Dell og fjölskyldu hans.