Bisca A/S í samstarfi við Aðföng hafa ákveðið að taka úr sölu og innkalla Karen Volf Snøfler® - to go! í 100g pakkningum.
Ástæða innköllunarinnar er sú að hætta er á að aðskotahlutir geti leynst í vörunni, en þá má rekja til bilunar á framleiðslulínu hennar. Með hliðsjón af neytendavernd er varan tekin úr sölu og innkölluð.
Varan var til sölu í verslunum Hagkaups á tímabilinu 5. mars til 24. mars 2017.
Upplýsingar um vöruna:
Viðskiptavinum Hagkaups sem keypt hafa vöruna er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Bisca A/S og Aðföng biðja viðskiptavini verslananna sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar