Herdís Dröfn Fjeldsted hefur látið af stjórnarmennsku í Vátryggingafélagi Íslands hf. frá og með deginum í dag. Tilkynning þess eðlis hefur borist kauphöllinni samkvæmt fréttatilkynningu.
Fram kemur að eftir brotthvarf Herdísar skipi eftirfarandi stjórnarmenn stjórn VÍS. Aðalmenn eru Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, formaður, Helga Hlín Hákonardóttir, varaformaður, Gestur Breiðfjörð Gestsson og Valdimar Svavarsson. Varamenn eru Andri Gunnarsson og Sandra Hlíf Ocares.