Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að stefnt sé að því að hér á landi verði lægsta almenna virðisaukaskattþrep Norðurlanda. Verður þrepunum þannig þjappað meira saman og færri undanþágur verða frá greiðslu virðisaukaskatts.
Lægra þrepið stendur í dag í 11% og efra þrepið í 24%.
Þetta kom fram í máli Bjarna á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Boðaði hann einnig fleiri breytingar þar sem skattkerfið yrði fært til nútímans. Meðal annars að „þögn sé sama og samþykki“ við skil á framtali. Þannig verði aðgerðarleysi túlkað sem staðfesting á framtali.
Í máli Bjarna kom einnig fram að tryggingagjald verður lækkað á núverandi kjörtímabili. Nefndi hann þó ekki hversu mikið.