Hallinn 37,5 milljarðar

Hallinn á vöruskiptin við útlönd var 37,5 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 25,6 milljarða. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands. 

Í mars voru fluttar út vörur fyrir 39,5 milljarða króna og inn fyrir 55,6 milljarða króna fob (59,4 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 16,1 milljarð króna. Í mars 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 22,1 milljarð króna á gengi hvors árs. 

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 108,6 milljarða króna en inn fyrir 146,1 milljarð króna fob (156,0 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 37,5 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 25,6 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 11,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 23,9 milljörðum króna lægra, eða 18,1%, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 58,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,2% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 34,5% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 35,4% lægra en á sama tíma árið áður, vegna verðlækkunar. Auk þess má reikna með að áhrifa af verkfalli sjómanna gæti enn í tölunum.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 12,1 milljarði króna lægra, eða 7,6%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á fjárfestingavörum, neysluvörum og flugvélum saman en á móti jókst innflutningur á eldsneyti og hrá- og rekstrarvörum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK