Heildartekjur Eyjafjarðarsveitar fyrir A- og B-hluta jukust um 9,4% árið 2016 miðað við árið á undan og námu 877,4 milljónum. Heildargjöld A- og B-hluta voru 864,6 milljónir og var niðurstaðan jákvæð um tæplega 13 milljónir. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 81,9 milljónir.
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu kemur fram að ársreikningurinn hafi verið samþykktur samhljóða á fundi sveitarstjórnar. Ekki voru tekin ný lán á árinu 2016 en eldri lán voru greidd niður um 26,8 milljónir.
Heildarskuldir og skuldbindingar í árslok 2015 voru 213,8 milljónir og er skuldahlutfallið 27,1%. Skuldaviðmið er 13,2% en leyfilegt hámark er 150%. Fjárfestingar ársins námu 31,3 milljónum. Stærri viðhaldsverkefni (markað viðhald) var 21 milljón.