Krónan er líklega ekki að fara að veikjast á næstunni og getur hæglega styrkst enn meira. Hagkerfið mun þó til lengdar ekki ráða við núverandi raungengi án þess að eitthvað láti undan. Þetta kemur fram í greiningu Greiningardeildar Arion banka þar sem farið er yfir ástæður þess að krónan sé orðin of sterk.
Greiningardeildin telur þó líkurnar á því að krónan verði veikari eftir fimm ár vera meiri en líkurnar á að hún verði sterkari.
Fyrsta ástæðan sem nefnd er í greiningunni fyrir því hversu sterk krónan er sú að Ísland er að mat deildarinnar að líkindum dýrasta land í heimi. Bent er á að verðlag á vörum og þjónustu í erlendri mynt er sérlega hátt hér um þessar mundir sökum sterkari krónu og að verðlag á Íslandi, fyrir utan húsnæðisverð, sé um 21% hærra en í Noregi
Þá er verðlagið sem ferðamenn standa frammi fyrir er hlutfallslega mjög hátt en gisting og veitingar eru 29% dýrari hér en í Noregi sem er algjör viðsnúningur fyrir tilstilli gengisbreytinga.
Þá bendir greiningardeildin á aðra ástæðu, þ.e. að laun á Íslandi séu með því allra hæsta sem gerist.
„Aftur á móti er framleiðni vinnuafls hér við meðaltal OECD. Þetta rýrir samkeppnisstöðu þjóðarbúsins,“ segir í greiningunni og er bætt við að gengisstyrkingin þýðir að laun hafa meira en tvöfaldast í erlendri mynt frá 2009 og að laun á Íslandi virðast almennt vera orðin nokkuð hærri en á Norðurlöndunum
Þá er bent á að lágmarkslaun hér á landi eru einnig með því allra hæsta sem gerist og að með hærri launum fylgir hærri launakostnaður fyrir fyrirtæki.
„Þrátt fyrir þessi háu laun í erlendri mynt er framleiðni, þegar leiðrétt hefur verið fyrir mismunandi verðlagi milli landa, fremur lítil hér á landi,“ segir í greiningunni en framleiðni vinnuafls á Íslandi er lægri en í ESB að meðaltali og að jafnaði fylgir hátt raungengi meiri framleiðni.
Þá er önnur ástæða að mati deildarinnar það að afkoma í útflutningsgreinum fer hratt versnandi.
„Útflutningsgreinar standa frammi fyrir verðhjöðnun tekjumegin en verbólgu gjaldamegin,“ segir í greiningunni og bent á gögn sem sýna að engin sjávarútvegsfyrirtæki segja að EBITDA hafi aukist sl. 6 mánuði og fleiri ferðaþjónustufyrirtæki segja að afkoman hafi versnað heldur en þau sem segja að hún hafi batnað.
„Útlit er fyrir að afkoma í sjávarútvegi verði sú lakasta í langan tíma,“ segir í greiningunni. „Óvissan er mikil og breytileikinn milli fyrirtækja enn meiri, en líkur eru á að næstu ár verði erfið fyrir mörg sjávarútvegsfyrirtæki,“ segir í greiningunni og bent á að það gæti kallað á talsverða hagræðingu á ýmsum sviðum greinarinnar.