Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 12. apríl um að synja Forlaginu um afhendingu gagna. Um er að ræða trúnaðargögn að mati Samkeppniseftirlitsins. Gögnin eru upplýsingar sem keppinautar Forlagsins á markaði veittu Samkeppniseftirlitinu.
Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar í heild
Forlaginu var árið 2011 gert að greiða 25 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir brot á samkeppnislögum. Héraðsdómur og Hæstiréttur hafa síðan staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins en lækkað sektina í 20 milljónir króna.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu á sínum tíma kom fram að Forlagið hafi orðið til árið 2008 með samruna tveggja fyrirtækja, þ.e. JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. Við meðferð samrunamálsins hjá Samkeppniseftirlitinu hafði Forlagið frumkvæði að því að setja fram hugmyndir að skilyrðum sem ryðja myndu úr vegi samkeppnishindrunum sem eftirlitið hafði komið auga á. Sátt náðist í málinu þar sem Forlagið skuldbatt sig til að hlíta tilteknum skilyrðum til að vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans.
Þá segir, að með ákvörðun nr. 24/2011 hafi Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að Forlagið hefði brotið gegn þessum skilyrðum.
„Fólust brotin í því að Forlagið braut gegn banni við birtingu leiðbeinandi endursöluverðs til smásala (14. gr.) og banni við því að veita bóksölum afslætti sem fælu í sér óeðlilega mismunun Forlagsins á milli þeirra (15. gr.) Skilyrðum þessum var m.a. ætlað að tryggja að Forlagið myndi ekki raska samkeppni í endursölu á bókum. Samkeppniseftirlitið lagði 25.000.000 kr. stjórnvaldssekt á Forlagið vegna þessara brota,“ segir í tilkynningunni.
Forlagið skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í september 2011 staðfesti áfrýjunarnefndin Forlagið hafi framið umrædd brot og álögð sekt hafi verið hæfileg. Forlagið skaut úrskurði áfrýjunarnefndar til dómstóla og í október 2014 staðfesti Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð áfrýjunarnefndar.