KEA hefur keypt allt hlutafé í Lostæti-Norðurlyst ehf. en það er dótturfélag Lostætis Akureyrar ehf. sem er í eigu hjónanna Valmundar Árnasonar matreiðslumeistara og Ingibjargar Ringsted viðskiptafræðings. Lostæti-Norðurlyst er eitt öflugasta veitingaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi sem m.a. rekur veitinga- og veisluþjónustu auk fjölda mötuneyta í skólum og fyrirtækjum á Akureyri og nágrenni. Lostæti Akureyri ehf. mun áfram sem hingað til reka veitingaþjónustu og handverksbakarí á Austurlandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Samhliða þessum kaupum hefur KEA náð samkomulagi við eigendur Prís ehf. um sameiningu félaganna og mun KEA eiga 40% eignarhlut í sameinuðu félagi.
Prís rekur veitingaþjónustu, veitingastað í Hrísalundi á Akureyri sem og Kaffi Torg á Glerártorgi á Akureyri og er í eigu hjónanna Regínu Gunnarsdóttur og Rúnars Sigursteinssonar. Áætluð sameiginleg velta félaganna er rúmlega 500 milljónir króna og hjá þeim vinna alls um 60 manns í um 40 stöðugildum. Framkvæmdastjóri sameinaðs félags verður Regína Margrét Gunnarsdóttir.
Markmiðið er að efla félagið og stækka það enn frekar bæði með innri og ytri vexti.
Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA, segir í tilkynningu að um áhugaverða fjárfestingu sé að ræða. „Lostæti-Norðurlyst og Prís hafa byggt upp öfluga þjónustu og gott orðspor í veitingaþjónustu sinni. Sameinað félag þjónustar fjölmarga bæjarbúa á degi hverjum og hefur fjölmarga möguleika til vaxtar í framtíðinni,“ segir í tilkynningu.