Algjör umskipti hafa orðið á gosdrykkjamarkaði undanfarin ár og sala á sykurlausum gosdrykkjum aukist á kostnað sykraðra.
Aukninguna má rekja til aukinnar sölu á kolsýrðu vatni, sem er orðið næstmest seldi vöruflokkurinn á markaðnum.
Kóladrykkir eru þó enn vinsælastir en sala sykurlausra kóladrykkja hefur aukist. Coca Cola er enn vinsælast, að því er fram kemur í umfjöllun um þróunina á gosdrykkjamarkaði í Morgunblaðinu í dag.