Landsbankinn hagnaðist um 12,7 milljarða króna á fyrri helmingi ársins, samanborið við 11,3 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2016. Hagnaður Landsbankans minnkar milli ársfjórðunga á þessu ári en bankinn hagnaðist um 7,6 milljarða á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Á heimasíðu Landsbankans er greint frá uppgjörinu. Þar kemur fram að arðsemi eigin fjár á tímabilinu hafi verið 10,6% á ársgrundvelli samanborið við 8,6% á sama tímabili 2016.
Vanskilahlutfall hélt áfram að lækka, það var 1,1% á fyrri helmingi ársins samanborið við 1,7% á sama tímabili 2016. Eigið fé var 238,9 milljarðar króna 30. júní og eiginfjárhlutfallið var 27,6%.
Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,5% á fyrri helmingi ársins 2017 en var 2,3% á sama tímabili árið áður.
Hreinar vaxtatekjur voru 18,2 milljarðar króna og hækkuðu um 3,2% á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 4,4 milljörðum króna og hækkuðu um 13,8% frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar lækkuðu um 1 milljarð króna á milli tímabila og vanskilahlutfall heldur áfram að lækka, var 1,1% á fyrri helmingi ársins samanborið við 1,7% á sama tímabili 2016.
Rekstrartekjur bankans á fyrri helmingi ársins hækkuðu um 2,5% frá sama tímabili ári áður, úr 28,6 milljörðum króna í 29,3 milljarða króna. Aðrar rekstrartekjur námu 5,4 milljörðum króna samanborið við 4,8 milljarða króna sama tímabil árið áður. Í tilkynningunni segir að hækkunin skýrist aðallega af jákvæðum gangvirðisbreytingum á óskráðum hlutabréfum.
Rekstrarkostnaður bankans nam 12 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins 2017 sem er lækkun um 1,7% miðað við sama tímabil árið 2016. Þar af var launakostnaður 7,1 milljarður sem er lækkun um 2,3% frá sama tímabili 2016. Annar rekstrarkostnaður lækkaði um 0,8% frá sama tímabili árið 2016 og var 4,9 milljarðar.
Kostnaðarhlutfall á fyrri helmingi ársins 2017 var 43,0% sem er lækkun um 4,3 prósentustig frá sama tímabili árið áður. Skýrist lækkunin einkum af jákvæðri þróun á mörkuðum ásamt lægri rekstrarkostnaði bankans, segir í tilkynningunni.