Verðmæti norska olíusjóðsins hefur náð einni billjón Bandaríkjadala sem nemur 106 billjónum íslenskra króna. Það jafngildir 20 milljónum króna á hvern Norðmann.
Áfanganum var náð eftir gengishækkanir helstu mynta heimsins gagnvart Bandaríkjadal og vegna batnandi ástands á hlutabréfamörkuðum.
Sjóðnum var komið á fót á tíunda áratugnum og er ætlað að fjármagna framtíðarþarfir velferðarríkisins með því að ávaxta það fé sem olíuvinnsla hefur aflað ríkinu.
Aðallega er fjárfest í hlutabréfum sem nema 65,1% af sjóðnum en einnig skuldabréfum og fasteignum. Sjóðurinn á hlut í nær 9.000 fyrirtækjum og nema eignir hans um 1,3% af heimsmarkaðsvirði.