Endurfjármagna skuldir Reykjaneshafnar

Uppbygging í Helguvík hefur verið kostnaðarsöm. Reykjanesbær er nú að …
Uppbygging í Helguvík hefur verið kostnaðarsöm. Reykjanesbær er nú að endurfjármagna skuldir Reykjaneshafnar. mbl.is

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir að sveitarfélagið nái undir lögboðið 150% skuldaviðmið fyrir árslok 2022 með endurskipulagningu efnahags Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar.

Reykjanesbær hefur fengið lánsloforð frá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð um 3,6 milljarða króna sem gerir bænum kleift að endurfjármagna m.a. skuldir Reykjaneshafnar.

Lánsloforðinu voru sett þau skilyrði að endurskipulagning fjárhags samstæðu Reykjanesbæjar leiði til þess að markmiðum aðlögunaráætlunar fyrir árin 2017-2022, sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum 18. apríl í ár, verði náð. Einnig er það skilyrði sett að samkomulag liggi fyrir við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga varðandi frekari lántökur á tímabili aðlögunaráætlunarinnar.

Fasteign skipt upp í tvö félög

Í fréttatilkynningu sem Reykjanesbær sendi frá sér í kvöld kemur fram að bæjarstjórn hafi samþykkt á fundi sínum í dag endurskipulagningu skulda Eignarhaldsfélagsins Fasteignar og endurskipulagningu skulda Reykjaneshafnar.

Kveður endurskipulagningin á um að Eignarhaldsfélaginu Fasteign sé skipt upp í tvö félög. Annars vegar félag sem heldur utan um eignir sem tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF1) og hins vegar félag sem heldur utan um eignir sem ekki tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF2). Endurskipuleggja á skuldir félaganna og gera við þau nýja leigusamninga. Leigusamningurinn við EFF1 verður til 2038 en leigusamningurinn við EFF2 til 2024.

Samþykktin hljóðar þá svo að hafi Reykjanesbær ekki náð undir 150% af lögbundnu skuldaviðmiði í árslok 2022 geti sveitarfélagið nýtt sér sölurétt á öllu hlutafé í EFF2 til kröfuhafa félagsins og þannig losað um skuldbindingar til lengri tíma.

Greiða upp hluta skulda hafnarinnar

Þá mun Reykjanesbær einnig nýta sér lánafyrirgreiðslu frá Lánasjóði sveitarfélaga og taka lán sem verður endurlánað til Reykjaneshafnar. Lánið verður nýtt til þess greiða upp hluta skulda hafnarinnar, meðal annars skuldabréfaflokkana RNH 16 og RNH 27, en endurfjármögnunin á að gera fjármögnun á skuldum Reykjaneshafnar hagstæðari en nú er.

„Nú liggur fyrir vilji mikils meirihluta kröfuhafa Reykjaneshafnar fyrir því að fallast á uppgreiðslu og skilmálabreytingar sem lagðar hafa verið til. Hins vegar hefur borist erindi frá einum kröfuhafa þess efnis að hann sætti sig ekki við að lækka vexti frá 15. október 2015 til greiðsludags,“ segir í tilkynningunni. 

Ekki verða þó allar skuldir hafnarinnar greiddar upp heldur verður hluti þeirra endurfjármagnaður með veði í lóðum hafnarinnar og er sölu á lóðum ætlað að standa undir greiðslu þeirra lána.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK