Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu sem fól í sér 10 milljóna króna stjórnvaldssekt á E-content fyrir brot gegn fyrri ákvörðun stofnunarinnar. E-content er rekstraraðili smálánafyrirtækjanna Kredia, Smálána, 1909, Múla og Hraðpeninga.
Þetta kemur fram á heimasíðu Neytendastofu. Þar segir að Neytendastofa hafi ekki talið fyrirtækið sýna fram á að farið hafi verið að ákvörðunum stofnunarinnar sem sneru að upplýsingagjöf til neytenda og þess kostnaðar sem lagður er á lán frá félaginu.
Auk stjórnvaldssektarinnar kvað ákvörðunin einnig á um það að félagið skuli greiða dagsektir verði háttseminni ekki breytt þannig að ákvörðununum sé fylgt.