Yucaipa Companies sem er stærsti hluthafi Eimskips með 25,3% hlut hefur ákveðið að leggja mat á stöðu sína sem hluthafi í Eimskip og skoða sölu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. Þar segir að ákvörðunin kunni að fela í sér sölu alls hlutafjár eða hluta þess, annaðhvort í útboði eða með beinum viðskiptum. Allar ákvarðanir Yucaipa um sölu verði háðar aðstæðum á fjármálamörkuðum og í efnahagsumhverfinu almennt.
Virði hlutar Yucaipa Companies nemur tæpum 14 milljörðum króna í dag en félagið var meðal lánardrottna Eimskips í endurskipulagningu félagsins árið 2009. Þá var hluturinn 32% en árið 2012 seldi Yucaipa 7% til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Yucapia hefur ráðið Deutsche Bank AG og Fossa markaði hf. sem ráðgjafa í ferlinu.