H. Ágúst Jóhannesson, endurskoðandi hjá KPMG, var kosinn nýr formaður Félags löggiltra endurskoðenda, á aðalfundi félagsins 10. nóvember. Hann tekur við af Margréti Pétursdóttur fráfarandi formanni.
Ágúst, eins og hann er kallaður, fæddist 21. febrúar 1960 í Reykjavík, hann fékk löggildingu sem endurskoðandi árið 1999. Hann hefur starfað hjá BDO Endurskoðun ehf, Ernst & Young og sem löggiltur endurskoðandi hjá KPMG frá 1999 og meðeigandi frá 2001. Ágúst hefur gegnt embætti varaformanns hjá félaginu síðastliðin tvö starfsár, að því er segir í tilkynningu.
Á ársþingi NRF, Norræna endurskoðendasambandinu sem haldið var í Þrándheimi í ágúst síðastliðinn tók Ísland við formennsku sambandsins. Ágúst er því líka formaður NRF næstu tvö árin.
Bryndís Björk Guðjónsdóttir endurskoðandi hjá PwC er nýr varaformaður félagsins. Aðrir í stjórn félagsins eru Guðni Þór Gunnarsson, Sif Einarsdóttir og Anna Kristín Traustadóttir, að því er segir í tilkynningunni.