Stefán Árni Einarsson hefur verið ráðinn forstjóri Límtrés Vírnets. Stefán tekur við starfinu af Stefáni Loga Haraldssyni sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá árinu 1999.
Stefán Árni hefur starfað hjá Húsasmiðjunni frá árinu 2007, fyrst sem framkvæmdastjóri innkaupa- og vörustýringarsviðs og frá 2012 sem framkvæmdastjóri fagsölusviðs. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri innkaupadeildar ÍAV, og sem framkvæmdastjóri Gamlhúsa og Bílanausts.
Stefán Árni lauk námi í byggingatæknifræði frá Tækniskóla Íslands árið 1997 og meistaragráðu í byggingaverkfræði frá Lunds Tekniska Högskola í Svíþjóð árið 1991.
Hann er giftur Sigurrós Ragnarsdóttir félagsráðgjafa og eiga þau saman 4 börn.
Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyrirtæki sem framleiðir og selur vörum fyrir íslenskan byggingariðnað. Starfstöðvarnar eru á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarnesi og á Flúðum. Fyrirtækið er nú um þessar mundir að flytja starfsemi sína, á höfuðborgarsvæðinu, í nýjar höfuðstöðvar að Lynghálsi 2, í Reykjavík.