Íslandsbanki og Landsbankinn eru hvor með tvær stórar áhættuskuldbindingar sem samtals nema rúmum 20% af eiginfjárgrunni hvors banka.
Greint var frá því á mbl.is að tvær stórar áhættuskuldbindingar væru í bókum Íslandsbanka. Skilgreining á því eru lánveitingar sem eru stærri en 10% af eiginfjárgrunni bankans. Í öðru tilfellinu er um að ræða 11% og í hinu um 10% af eiginfjárgrunninum. Nema útlánin 18,7-20,6 milljörðum hvort.
Félögin sem um ræðir eru í rekstri fasteigna annars vegar en hins vegar í starfsemi tengdri ferðaþjónustu, að því er kemur fram í svari Íslandsbanka við fyrirspurn mbl.is.
Í ársreikningi Landsbankans kemur fram að bankinn sé með tvær stórar áhættuskuldbindingar í sínum bókum, sem samtals nema 53,2 milljörðum króna eða 22% af hæfu fjármagni. Ekki var unnt að flokka skuldbindingarnar eftir atvinnugreinum.
„Stórar áhættuskuldbindingar reiknast sem samtala áhættuskuldbindinga til hóps tengdra viðskiptamanna. Í slíkum viðskiptamannahópi geta verið aðilar sem falla ekki undir sömu atvinnugreinaflokkun,“ segir í svari Rúnars Pálmasonar, upplýsingarfulltrúa Landsbankans, við fyrirspurn mbl.is.
Þá falla engin útlán hjá Arion banka undir þessa skilgreiningu.
Sömu reglur um áhættuskuldbindingar gilda hér á landi og innan EES en þær kveða á um að áhættuskuldbindingar fari ekki fram yfir 25% af eiginfjárgrunni fjármálafyrirtækisins. Í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn mbl.is um það hvort einhverra breytinga á reglunum sé að vænta kemur fram að Basel-nefndin um bankaeftirlit hafi lagt til að lækka hlutfallið hjá alþjóðlega kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum í 15% af hæfu fjármagni.