„Miðað við það sem ég hef séð á þessum eina degi sem ég hef verið á Íslandi er fólk mjög meðvitað um hvernig nota megi gögn, mikilvægi þeirra, hvernig þau hafa áhrif á hið stafræna og áhrif á aðra geira,“ sagði Alexander Nix, fyrrverandi forstjóri Cambridge Analytice, fyrir um hálfu ári í Hörpu.
Nix var í gær rekinn frá breska ráðgjafafyrirtækið Cambridge Analytica vegna tengsla hans við gagnaleka af Facebook. Upptökur af Nix hafa verið birtar þar sem hann stærir sig af þætti Cambridge Analytica í forsetaframboði Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
Nix hélt erindi á Haustráðstefnu Advania fyrir um hálfu ári síðan þar sem hann fjallaði um „umdeilda markaðstækni“ sem fyrirtækið hans hefur þróað og gerir viðskiptavinum þess kleift að sérsníða skilaboð til neytenda og kjósenda með mun nákvæmari og áhrifaríkari hætti en áður hefur þekkst.
„Í dag fjallaði ég um stórgögn og hvernig þau eru að stórbreyta auglýsinga- og markaðsgeiranum. Bæði hvað varðar vörumerki og fyrirtæki og einnig í pólitísku samhengi,“ sagði Nix í kynningarmyndbandi eftir ráðstefnuna en þetta var fyrsta heimsókn hans til Íslands.
„Við erum að skoða hvernig gögn eru notuð til að bera kennsl á og miða á mismunandi markaðshópa og svo tengja við þá með persónulegri samskiptum og skilaboðum.“
Nix sagðist halda að gögn muni hafa áhrif á marga ólíka geira. „Við höfum þegar séð áhrifin í fjármálageiranum, heilbrigðisþjónustu, netverslun og nú erum við að sjá áhrifin í fjarskiptageiranum,“ sagði hann. „Það gefur auga leið að með neti hlutanna (e. IoT) mun tiltækt magn gagna vaxa á veldishraða næstu fimm til tíu árin.“