Á aðalfundi Íslandsbanka í gær var samþykkt að 13 milljarðar króna af hagnaði ársins 2017 yrðu greiddir í arð til hluthafa en bankinn hefur þá greitt um 76 milljarða króna til hluthafa í arð frá árinu 2013.
Stjórn bankans var einnig fengin heimild til að kalla til sérstaks hluthafafundar síðar á árinu þar sem tillaga um greiðslu arðs af hagnaði fyrri rekstrarára kann að vera lögð fram.
Árið 2017 greiddi bankinn 9,5 milljarða króna í skatta og þar af námu bankaskattur og aðrir sértækir skattar 4,5 milljörðum króna.
Íslandsbanki hagnaðist um 13,2 milljarða króna á síðasta ári samanborið við 20,2 milljarða árið áður. Var munurinn sagður skýrast af einskiptistekjum af sölu Borgunar í hlutum í Visa Europe árið 2016.
Nýlega samþykkti Landsbankinn að greiða út arð að fjárhæð 24,8 milljarða króna á árinu 2018. Arion banki greiddi 25 milljarða króna arð til hluthafa sinna en þar af var 17,1 milljarði ráðstafað til kaupa á eigin bréfum.