Matsfyrirtækið Moody‘s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar fyrir óveðtryggðar lánaskuldbindingar án ríkisábyrgðar úr Baa3 í Baa2. Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar með ríkisábyrgð er óbreytt, Baa1. Horfur eru metnar stöðugar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.
Samkvæmt ákvörðun Moody’s endurspeglar hækkunin að Landsvirkjun hefur sýnt fram á stöðugan rekstur. Þá bendir Moody’s á getu Landsvirkjunar til að standast breytingar á hrávörumörkuðum án þess að áhætta fyrirtækisins aukist og þann árangur sem fyrirtækið hefur náð í því að minnka áhættu tengda gengi, vöxtum og álverði.
Að lokum bendir Moody’s á að eftir að fjárfestingum lýkur á árinu 2018 muni sjóðsmyndun draga verulega úr skuldsetningu fyrirtækisins.
„Landsvirkjun hefur markvisst unnið að því að draga úr markaðsáhættu fyrirtækisins sem hefur skilað sér í stöðugum rekstri. Samhliða því hefur verið unnið að lækkun skulda og byggt undir möguleika fyrirtækisins til að auka arðgreiðslur til eiganda síns, íslensku þjóðarinnar,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í tilkynningunni.
„Landsvirkjun gaf nýlega út, fyrst íslenskra útgefenda, græn skuldabréf án ríkisábyrgðar. Þar sýndi sjöföld eftirspurn fram á að fyrirtækið hefur gott aðgengi að lánsfjármörkuðum. Það er sérstaklega ánægjulegt að Moody’s horfi til bættrar rekstrarstöðu Landsvirkjunar og áframhaldandi sterkrar stöðu fyrirtækisins, samhliða frekari lækkun skulda.“