Einkahlutafélagið FS13 hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Saga félagsins byrjar snemma árs 2007 þegar Árni B. Sigurðsson fjárfestir leitaði til fyrirtækjasviðs KPMG í því skyni að stofna einkahlutafélag og finna fjárfesta til samstarfs um rekstur viðarkurlsverksmiðju í Króatíu. Úr varð að hann keypti félag sem hét FS13 af lager hjá fyrirtækinu CF fyrirtækjasölu, sem var í eigu KPMG.
Samkvæmt ákæru á hendur tveimur fyrrverandi starfsmönnum KPMG; lögfræðingi fyrirtækjasviðs KPMG og ráðgjafa, voru þeir sakaðir um að hafa gert tilraun til að hafa FS13 af Árna með ólögmætum hætti.
Þeir voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa brotið gegn lögum um einkahlutafélög með því að senda ranga tilkynningu til fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra, vegna FS13. Tilkynningin var um breytingu á prókúru, stjórn og firmaritun og um nýjar samþykktir.
Í tilkynningunni kom fram að breytingarnar á félaginu hafi verið ákveðnar á löglegum hluthafafundi, en starfsmönnunum átti alltaf að vera ljóst að hann var ólöglegur. Héraðsdómur taldi brotavilja ákærðu einbeittan.
Bótakröfu Árna og félagsins á hendur fyrrverandi starfsmönnunum tveimur og kaupsýslumanni sem átti aðkomu að málinu var hins vegar vísað frá í héraðsdómi og síðan í Hæstarétti. Krafðist Árni samtals rúmlega milljarðs króna í bætur.