Þýski bankinn Deutsche Bank ætlar að fækka störfum um sjö þúsund á næstunni en uppsagnirnar eru liður í endurskipulagningu rekstrar bankans þar sem unnið er að því að snúa rekstrinum úr tapi í hagnað að nýju.
Í dag eru starfsmenn bankans rúmlega 97 þúsund talsins en verða tæplega 90 þúsund eftir uppsagnirnar.