Margrét stýrir mannauðslausnum Advania

Margrét Gunnlaugsdóttir.
Margrét Gunnlaugsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Margrét Gunnlaugsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns mannauðslausna Advania. Hún var áður forstöðumaður á rekstrarlausnasviði fyrirtækisins. 

„Samhliða örum breytingum í rekstrarumhverfi fyrirtækja koma nýjar áskoranir í mannauðsmálum. Advania hefur verið leiðandi í að mæta þeim og býður fyrirtækjum mannauðslausnir sem auðvelda allt frá ráðningu til starfsloka. Margrét leiðir 42 manna teymi sem annast þróun, þjónustu, ráðgjöf og innleiðingu á lausnunum,“ segir í tilkynningu frá Advania.

Þar segir að mannauðslausnir Advania séu þær mest notuðu af stórum fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi. Lausnirnar eru tíma- og viðveruskráningakerfi, fræðslu-, launa- og mannauðskerfin H3, Bakvörður og Eloomi.

Margrét hóf störf hjá Advania í apríl sem forstöðumaður á rekstrarlausnasviði. Hún hefur nú tekið við starfi forstöðumanns mannauðslausna af Daða Friðrikssyni sem leiðir sölumál á nýju sviði ráðgjafar og sérlausna.

Margrét starfaði áður sem vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já, var sviðsstjóri hjá Wise og rekstrarstjóri tækniþjónustu hjá Íslandsbanka. Hún hefur því víðtæka stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK