Halla Árnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mannauðs- og launalausna og Ásta Guðmundsdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður kerfisþjónustu hjá Origo.
Halla er með BS-próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað sem ráðgjafi og vörustjóri hjá viðskiptalausnum Origo og forvera þess fyrirtækis frá 2004, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.
Ásta er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með MSc í verkefnastjórnun frá Lancaster University. Hún hefur starfað hjá Origo og forvera fyrirtækisins frá 2013 sem verkefnastjóri og hópstjóri í kerfisrekstri.
Origo er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá fyrirtækinu starfa 450 manns.