Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna (RB), hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu. Hann mun starfa áfram hjá RB þar til nýr forstjóri hefur störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reiknistofunni. Friðrik hefur verið forstjóri RB frá því í febrúar 2011 og hefur því verið forstjóri í tæp átta ár. Fram kemur að engin röskun verði á starfsemi RB vegna þessara breytinga.
„Ég hef stýrt RB í hátt í átta ár og fannst kominn tími til að breyta til og horfa til nýrra verkefna. Í fyrirtæki sem veitir fjármálakerfinu jafnmikilvæga þjónustu skiptir höfuðmáli að vandað sé til verka þegar kemur að breytingum á yfirstjórn og taldi ég því mikilvægt að upplýsa strax um ákvörðun mína þannig að ráða mætti nýjan forstjóra í góðu tómi,“ er haft eftir Friðriki í tilkynningunni.
RB sinnir þróun, viðhaldi og rekstri hinna ýmsu lausna fyrir fjármálafyrirtæki sem og tryggingafélög og rekur öll megingreiðslukerfi landsins.