Creditinfo gefur á hverju ári út lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Listinn er kynntur á viðburði í Hörpu nú síðdegis.
Meðal þeirra sem fram koma á viðburðinum eru Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Brandenburgar og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Á viðburðinum verða m.a. veitt verðalun fyrir framúrskarandi árangur á sviði nýsköpunar og samfélagsábyrgðar. Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá athöfninni í Hörpu:
Á morgun fylgir Morgunblaðinu glæsilegt 96 síðna blað með listanum yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2018. Þar er rætt við fjölda fyrirtækjastjórnenda sem eiga fyrirtæki á listanum og tölfræði um fyrirtækin sett fram á lifandi og spennandi hátt.
Í tengslum við útgáfuna verður opnaður nýr undirvefur mbl.is sem hefur að geyma listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki og viðtölin við fyrrnefnda stjórnendur.