Hækkun bréfa í Icelandair í Kauphöllinni í dag eru viðbrögð markaðarins við tíðindum af rekstri WOW air og breytingum á samkeppnisumhverfi á flugmarkaði. Þá eru markaðsaðilar vafalítið sömuleiðis að velta fyrir sér hver viðbrögð Icelandair verða í framhaldinu.
Þetta er mat Elvars Inga Möller hjá greiningardeild Arion banka. „Séð frá bæjardyrum Icelandair er helsti samkeppnisaðili félagsins að draga umtalsvert saman seglin ef fram fer sem horfir,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Það verði því athyglisvert að fylgjast með hver viðbrögð Icelandair verði við þessum breytingum. WOW air er að boða fækkun í flugvélaflota sínum úr 20 í 11 vélar, þar með taldar eru allar breiðþotur félagsins og því sé ekki útilokað að um sé að ræða meira en helmings fækkun í framboðnum sætum, að sögn Elvars.
Elvar bendir á að á hluthafafundi sem Icelandair hélt í lok síðasta mánaðar hafi verið efst á baugi umræða um það hver viðbrögð félagsins gætu orðið ef það kæmi til mikils samdráttar í sætaframboði hingað til lands. Það megi því leiða að því líkur að félagið muni bregðast við þessum breytingum sem felast í rekstri WOW air, en það eigi eftir að koma í ljós hver þau nákvæmlega verði.
Ferðamálavefurinn Túristi hefur í þessu samhengi greint frá því að Icelandair sé að auka framboð verulega í vor á flugum til Evrópulanda. Það kann þá að vera liður í þeirra viðleitni að mæta aukinni eftirspurn.