Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands, keypti í dag fyrir tæplega 37 milljónir í félaginu. Keypti hann 160 þúsund hluti á genginu 230,5 krónur. Bréf félagsins hafa hækkað um rúmlega 1% í rúmlega 175 milljóna viðskiptum. Greint er frá viðskiptunum í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Baldvin er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Samherja og var áður forstjóri Jarðborana á árunum 2013-2016. Þá er hann stjórnarformaður Olís. Samherji keypti fjórðungshlut í Eimskip í júlí eftir að fjárfestingafélagið Yucaipa Company seldi hlut sinn. Fóru viðskiptin fram á genginu 220 krónur á hlut og var söluverðmætið um 11,1 milljarður. Baldvin er sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja.
Samkvæmt kynningu á frambjóðendum til stjórnar félagsins í september átti Baldvin sjálfur enga hluti í félaginu á þeim tíma.