182 fasteignir seldar á einni viku

Alls var 182 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 30. nóvember til og með 6. desember. Þar af voru 138 samningar um eignir í fjölbýli, 34 samningar um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 9.878 milljónir króna og meðalupphæð á samning 54,3 milljónir króna. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands.

Á sama tíma var 32 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af var 21 samningur um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.177 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 18 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 14 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 489 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,1 milljón króna.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 8 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 396 milljónir króna og meðalupphæð á samning 44 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK