Bjarni Ármannsson hefur verið ráðinn forstjóri Iceland Seafood International (ISI). Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu, sem segir stjórn ISI hafa ákveðið að ráða Bjarna í stöðuna.
Samfara því stígur Bjarni úr stóli stjórnarformanns ISI, en hann hefur gegnt því hlutverki frá því í september í fyrra, og tekur við starfi Helga Antons Eiríkssonar sem lætur að störfum að eigin ósk eftir níu ár sem forstjóri. Þá hefur Lee Camfield, COO, einnig óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu.
Bæði Helgi og Lee munu starfa náið með nýjum forstjóra næstu mánuði.
„Helgi hefur verið forstjóri félagsins frá 2010 og hefur leitt uppbyggingu félagsins sem alþjóðlegs framleiðanda á sjávarafurðum, byggða á hinum sterka íslenska grunni félagsins og í samstarfi við íslenska framleiðendur. Félagið stendur eftir fjárhagslega sterkt og er tilbúið fyrir enn frekari vöxt,“ er haft eftir Bjarna í tilkynningunni, sem segir spennandi tíma fram undan hjá fyrirtækinu.