Flugfélagið Play hefur sent tölvupóst á þá sem hafa skráð sig á póstlista hins nýstofnaða flugfélags þar sem finna má leiðbeiningar hvernig freista má þess að fá frímiða þegar flugfélagið opnar fyrir sölu.
Fram kemur í ViðskiptaMogganum í dag að flugfélagið sé tilbúið að hefja sig til flugs og greindi Arnar Már Magnússon, forstjóri Play, frá því í síðustu viku að stefnt er á jómfrúarferð í desember.
Ekki hefur verið gefið upp hvenær sala á flugmiðum hefst en í póstinum sem sendur var í dag segir að póstur verði sendur á þá sem hafa skráð sig á póstlista Play um leið og sala hefst. „Það verður fljótlega – svo ekki örvænta,“ segir í póstinum sem sendur var í dag.
Þegar opnað hefur verið fyrir sölu verður hægt að fara inn á heimasíðu Play, www.flyplay.com, og „bóka flug á undan öllum öðrum“. Vert er þó að benda á að mörg þúsund manns hafa skráð sig á póstlistann en í bókunarvélinni eru 1.000 frímiðar og um þá gildir að fyrstur kemur, fyrstur fær.
Frímiðarnir eru á víð og dreif um bókunarvélina og verða í boði til allra áfangastaða á völdum dagsetningum. Áfangastaðirnir sex sem Play horfir til þess að fljúga til í upphafi eru Kaupmannahöfn, London, París, Berlín, Alicante og Tenerife.
Til að eiga möguleika á frímiða þarf að setja inn brottfarar- og áfangastað og velja dagatalið. Þar birtast þær dagsetningar sem flogið verður á og verð fyrir neðan hverja dagsetningu. Ef verðið er 0 kr. er um að ræða frímiða.
Í póstinum er bent á að fleiri en einn gætu verið að skoða sömu dagsetningar og þarf því að ganga frá bókun til að tryggja sér frímiðann.
Þetta er þó ekki alveg svona einfalt. Í „smáa letrinu“ má finna frekari upplýsingar um fyrirkomulag frímiðanna: