Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch birti í dag mat á lánshæfi ríkissjóðs og eru lánshæfiseinkunnir óbreyttar. Langtímaeinkunnir í innlendri og erlendri mynt standa í A og skammtímaeinkunnir eru óbreyttar í F1+. Horfur eru stöðugar, að því er fram kemur í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Í fréttatilkynningu Fitch segir að A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs endurspegli m.a. háa landsframleiðslu á mann og góða stöðu ríkisfjármála. Stærð hagkerfisins og takmarkaður fjölbreytileiki útflutnings draga einkunnina hins vegar niður.
Verulegur bati á efnahagsreikningi hins opinbera, studd varfærinni stefnu í opinberum fjármálum, ásamt frekari bata í ytri stöðu og viðnámsþrótti hagkerfisins til að bregðast við ytri áföllum, gætu leitt til hærri lánshæfiseinkunnar.
Viðvarandi og skarpari niðursveifla en gert er ráð fyrir með tilheyrandi áhrifum á bankakerfið, ásamt verulegu fjármagnsútflæði sem ógnað gæti fjármálastöðugleika, gæti leitt til lægri lánshæfiseinkunnar.