Lilja Rut Traustadóttir, Eggert H. Sigmundsson og Hafrún Pálsdóttir hafa gengið til liðs við Coca-Cola European Partners á Íslandi.
Fram kemur í tilkynningu, að Lilja Rut veiti nú forystu gæða-, umhverfis-, heilsu- og öryggismálum hjá fyrirtækinu. Þar eru um 160 starfsmenn, þar af um 100 á vörustjórnunarsviði við framleiðslu, í vöruhúsi og dreifingu, bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Lilja Rut hefur stjórnendareynslu í gæða-, öryggis- og heilsumálum, en hún starfaði hjá Gæðabakstri – Ömmubakstri í tæp 7 ár, fyrst sem gæðastjóri og síðar sem gæða- og mannauðsstjóri, að því er segir í tilkynningu. Þar áður starfaði hún í heilsugeiranum sem ráðgjafi og þjálfari. Lilja Rut hefur starfsleyfi sem næringarfræðingur, lauk mastersgráðu í næringarfræði árið 2016 frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í næringarfræði frá sama skóla árið 2012. Hún er gift Jóni Kolbeini Guðjónssyni verkfræðingi og eiga þau tvö börn.
Eggert er nýr forstöðumaður Víking brugghúss sem er í eigu Coca-Cola European Partners á Íslandi. Hjá Víking brugghúsi vinna 27 starfsmenn og þar eru framleiddar fjölmargar bjórtegundir.
Eggert hefur verulega stjórnunarreynslu í matvælaiðnaði en hann starfaði sem framleiðslustjóri hjá Norðlenska matborðinu síðastliðin 12 ár. Hann lauk B.Sc í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2004. Eggert er giftur Sólrúnu Óladóttur iðjuþjálfa og eiga þau þrjú börn á aldrinum 6-18 ára, að því er fram kemur í tilkynningu.
Hafrún Pálsdóttir er nýr sölustjóri á veitingamarkaði hjá Coca-Cola á Íslandi en hún, ásamt öflugu söluteymi, ber ábyrgð á sölumálum á veitingamarkaði um land allt.
Hafrún hefur mikla reynslu af sölu og stjórnun en hún starfaði síðastliðin 10 ár við sölumál flugfélaga, þar af 7 ár hjá WOW air sem forstöðumaður á sölu- og markaðssviði. Hún útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2009 og er gift Óskari Sigurðssyni viðskiptafræðingi og eiga þau saman eina dóttur, að því er fyrirtækið segir í tilkynningunni.