Eftir að hafa hríðfallið í verði í gær hefur gengi hlutabréfa bílaleigunnar Hertz hækkað um ríflega 150% í kauphöllinni vestanhafs. Stendur gengið nú í ríflega 1,41 Bandaríkjadal. Hertz hefur átt í talsverðum fjárhagsörðugleikum sökum áhrifa kórónuveirunnar í Bandaríkjunum.
Fyrirtækið hefur sótt um greiðslustöðvun eftir slæm áhrif kórónuveirufaraldursins á rekstur fyrirtækisins. Alþjóðlegur rekstur fyrirtækisins, meðal annars í Evrópu, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi fellur ekki undir greiðslustöðvunina, heldur nær hún eingöngu til Bandaríkjanna.
Vonir eru þó enn bundnar við að hægt verði að semja við lánveitendur. Eru fjárfestar nú bjartsýnir á að opnun Bandaríkjanna sé handan við hornið og í framhaldinu geti bílaleigan rétt úr kútnum.