Reykjavík Roasters tekur við veitingarekstri í Gerðarsafni í Kópavogi og var ritað undir samning þess efnis á safninu í dag.
Reykjavík Roasters rekur þrjú kaffihús í Reykjavík. Staðirnir eru rómaðir fyrir gott kaffi og meðlæti sem verður á boðstólum í Gerðarsafni. Á kaffihúsi safnsins verður þó meira úrval af mat í hádeginu en á öðrum stöðum sem reknir eru undir merkjum Reykjavík Roasters. Stefnt er á að staðurinn hefji göngu sína í Gerðarsafni á nýju ári en hafist verður handa við undirbúning opnunar fljótlega, að því er fram kemur í tilkynningu.
„Það er tilhlökkunarefni að fá Reykjavík Roasters hingað í Kópavog. Það er góður samhljómur með starfsemi Gerðarsafns og Reykjavík Roasters og miklir samstarfsmöguleikar fyrir hendi. Kaffihúsið verður kærkomin viðbót við þá afþreyingu og upplifun sem stendur til boða í Gerðarsafni og Menningarhúsum Kópavogs,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs.
„Gerðarsafn er frábært tækifæri fyrir okkur í Reykjavík Roasters. Staðurinn er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og umgjörðin afar falleg. Við hlökkum til að opna dyrnar að nýjum stað og bjóða gesti velkomna,“ segir Þuríður Sverrisdóttir, einn eigenda Reykjavík Roasters.