Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin forstöðukona framtíðarsýnar og reksturs hjá Veitum. Hún útskrifaðist með BS-próf í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og með M.Sc-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2012. Að námi loknu hóf Guðbjörg störf á framleiðslusviði Össurar, fyrst sem ferilseigandi á CNC-renniverkstæðinu þar til hún tók við öryggis- og umbótasviði framleiðslu og síðar starfaði hún sem framleiðslustjóri silikondeildar.
Guðbjörg Sæunn var ráðin forstöðumaður fráveitu Veitna árið 2019 en tekur nú við nýju sviði í breyttu skipulagi fyrirtækisins. Undir sviðið, framtíðarsýn og rekstur, heyra svæðisfulltrúar, verkefnastjórar, fageftirlit, hönnun, vöruþjónusta, gagnagreining, stefnumótun og umhverfis- og skipulagsmál.