Arnór Gunnarsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS, hefur bætt við sig 950 þúsund hlutum í félaginu, samtals að verðmæti tæplega 15 milljónir. Hlutabréfin keypti hann í gegnum eigið fjárfestingafélag sem heitir YNWA ehf.
Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar vegna viðskipta fruminnherja keypti Arnór bréfin á genginu 15,47 í dag, eða fyrir samtals 14,7 milljónir.
Fyrir á Arnór 311.594 hluti í félaginu í eigin nafni og 1,33 milljón hluti í gegnum YNWA ehf. Eftir kaupin á hann því samtals í eigin nafni og í gegnum fjárfestingafélagið 2,59 milljón hluti, en miðað við fyrrnefnt gengi bréfa í VÍS er verðmæti hlutarins upp á 40,1 milljón króna.
Flestir stuðningsmenn fótboltafélagsins Liverpool ættu að kannast við heiti fjárfestingafélagsins, en heiti þess er sama og skammstöfun stuðningslags félagsins, You'll never walk alone.
Lagið er bandarískt að uppruna, samið 1945, en stuðningsmenn Liverpool hófu að syngja það 1963. Það varð fljótt einkennislag liðsins og nú er það sungið fyrir hvern leik á heimavelli Liverpool, Anfield.