Samsetning útflutningstekna á sviði nýsköpunar, hugvits og tækni hefur gjörbreyst og er ástæða til bjartsýni í geiranum. Fyrirtækin sjá fram á vöxt á næsta árinu. Þetta leiða niðurstöður nýrrar könnunar Íslandsstofu meðal fyrirtækja á þessu sviði í ljós.
„Þannig hefur vægi útflutningstekna á sviði hugvits og tækni aukist úr 7% í 15%. Þar með hefur fjórða stoð útflutnings í hagkerfinu litið dagsins ljós,“ segir í tilkynningu frá Íslandsstofu um málið.
Í niðurstöðunum kemur m.a. eftirfarandi fram:
- Flest fyrirtækin sjá fram á vöxt næstu 12 mánuðina.
- Nær öll fyrirtækin hyggjast fjölga starfsmönnum á árinu.
- Þrátt fyrir Covid-19 þá stóðust áætlanir meirihluta svarenda.
- Almennt hefur viðskiptavinum ekki fækkað.
- Örlítill samdráttur var á tekjum á milli áranna 2019 og 2020 en starfsmönnum fjölgaði á sama tíma um 14%.
- 67% fyrirtækjanna hafa rekstrarfé miðað við óbreyttan rekstur til næstu tólf mánaða.
- Samanlagt hyggjast fyrirtækin sækja um 24 milljarða fjárfestingu á næstu tólf mánuðum.
- Fyrirtækin fjölguðu starfsfólki um 14% á síðasta ári. Það er ljóst að sá vöxtur verður mun hraðari ef fyrirtækin ná að sækja sér fyrirhugaða vaxtarfjármögnun.
- Ef horft er fimm ár fram í tímann, þá verður fjöldi starfa á þessu sviði kominn í um 3.500 manns miðað við áframhaldandi 14% vöxt á ári.
- Ef vöxtur fyrirtækjanna verður 20% á ári verður fjöldi starfa orðinn tæplega 5.000 manns 2026. Í dag starfa um 1.570 manns hjá þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í könnuninni.
- Helstu viðskiptavinir fyrirtækjanna eru í Bandaríkjunum, Norðurlöndunum, Þýskalandi og Frakklandi, en það eru þau markaðssvæði sem Íslandsstofa skilgreinir sem lykilmarkaði í sinni útflutningsstefnu.
- Aðeins 6% fyrirtækjanna hafa fjármagnað sig í gegnum bankakerfið.
- Vaxtarmöguleikar íslenska hagkerfisins eru miklir á þessu sviði.