Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu.
Eva Sóley hóf störf hjá Icelandair Group í byrjun árs 2019 og hefur verið í lykilhlutverki að koma félaginu í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður. Þar má nefna yfirgripsmikla fjárhagslega endurskipulagningu félagsins á síðasta ári sem lauk með mjög vel heppnuðu hlutafjárútboði. Þar að auki hefur hún leitt fjármálasvið félagsins í gegnum mikið umbreytingarferli, að því er félagið greinir frá í tilkynningu.
Fram kemur, að Ívar Sigurður Kristinsson hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group tímabundið og taki nú þegar sæti í framkvæmdastjórn félagsins.
Ívar hefur á undanförnum árum starfað hjá Icelandair, m.a. sem framkvæmdastjóri flotamála og leiðakerfis félagsins og þar áður sem stjórnandi á fjármálasviði. Hann var forstöðumaður hjá Promens á árunum 2006-2008 eftir að hafa starfað sem verkefnastjóri í upplýsingatækni og rekstrarstýringu hjá Icelandair frá árinu 2000. Ívar er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu með áherslu á fjármál frá University of North Carolina, Chapel Hill, segir í tilkynningu.
Eva Sóley mun starfa áfram hjá félaginu næstu vikur meðan á yfirfærslunni stendur.
„Ég þakka Evu Sóleyju fyrir frábær störf í þágu félagsins og óska henni velfarnaðar í framtíðinni. Framlag hennar hefur verið ómetanlegt í þeirri vegferð að koma Icelandair Group í gegnum gríðarlega erfiðar aðstæður á undanförnum misserum. Um leið og við kveðjum Evu Sóleyju með söknuði, þá skiljum við þessa persónulegu ákvörðun hennar. Þá býð ég Ívar velkominn í nýtt hlutverk. Hann þekkir félagið mjög vel og hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á flugrekstri en hann hefur meðal annars verið í lykilhlutverki í fjármögnun og mótun flotastefnu félagsins á undanförnum árum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningunni.
„Ég er ákaflega stolt af því að hafa fengið tækifæri til að vinna fyrir þetta einstaka félag með framúrskarandi stjórnendateymi og starfsfólki á þessum fordæmalausum tímum sem félagið hefur gengið í gegnum á meðan ég hef gegnt hlutverki framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Ég hef ákveðið að skipta um takt á þessum tímapunkti og hef því tekið þá erfiðu ákvörðun að segja skilið við félagið. Ég óska samstarfsfólki mínu og félaginu alls hins besta og hlakka til að fylgjast með félaginu áfram sem stoltur hluthafi,“ er haft eftir Evu Sóley Guðbjörnsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Icelandair Group.