Af þeim átta heimsmetum sem Hafþór Júlíus Björnsson einsetti sér að bæta fyrir Heimsmetabók Guinness hafa sjö nú verið slegin. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Hafþórs en ekki kemur þar fram hvort hann hafi slegið þau eða einhver af öðrum kraftakörlum á við hinn litháenska Žydrūnas Savickas sem einnig tekur þátt í áskorun heimsmetabókarinnar.
Hafþór er nú staddur í Mílanó en eins og Monitor greindi frá í síðasta mánuði þurfti hann meðal annars að hafna boði um að leika í kvikmynd með Tinu Fey vegna verkefnisins með Heimsmetabókinni.