Hvernig væri að baka brauð og bjóða fjölskyldunni upp á í hádeginu? Það tekur enga stund að útbúa þetta heilsubrauð.
Uppskrift
2 ½ dl gróft spelt
2 ½ dl fínt spelt
1 dl sesamfræ
1 dl graskerjafræ
1 msk. vínsteinslyftiduft
½ tsk. salt
1 msk. hunang
2 dl vatn
1 msk. sítrónusafi
Hitið ofninn í 180°C, blandið þurrefnunum saman í skál + hunangi, hellið vatni og sítrónusafa út í og hrærið þessu saman. Skiptið deiginu í tvennt, setjið í meðalstórt smurt form. Bakið við 180°C í um 30 mín, takið brauðið úr forminu og haldið áfram að baka í 10 mín.
Það er gott að setja allskonar hnetur og fræ út í, ásamt sólþurrkuðum tómötum, ólífum, hvítlauk, gojiberjum eða því sem þig langar mest í.