Amal Alamuddin hafði nokkra slæma ávana þegar hún byrjaði að hitta leikarann George Clooney. Eins og fram hefur komið gifti parið sig síðasta laugardag í Feneyjum og strax eftir helgina birtust brúðkaupsmyndir af þeim í Hello og People. Jae Kim, vinkona Alamuddin úr lögfræðinni, sagði í samtali við People að brúðurin hefði haft háleit markmið þegar kom að makavali og hefði ekki sætt sig við hvað sem er. Hún hafi verið í leit að hinum fullkomna manni og hefði aldrei misst sjónar af því. Hún grínast með það í samtali við blaðið að hugmyndir Alamuddin hefðu verið eins og í rómantískri næntísmynd og grínið hefði verið að það eina sem vantaði inn í líf Alamuddin að George Clooney myndi banka upp á.
Kim hafði líka orð á því að Alamuddin hefði haft nokkra slæma ávana sem hún sé búin að vinna bug á. „Hún hætti að reykja þegar hún byrjaði með Clooney og skyndilega orðin stundvís,“ sagði Kim í viðtalinu.