Léttist um 49 kíló og fitnaði aftur um 8 kíló

Þór Viðar Jónsson fyrir og eftir.
Þór Viðar Jónsson fyrir og eftir.

Þór Viðar Jónsson er einn af þeim sem tóku þátt í Biggest Loser Ísland en þættirnir voru sýndir á SkjáEinum fyrr á þessu ári. Þór náði góðum árangri í þáttunum og því er ekki úr vegi að spyrja hann á hvaða stað hann sé staddur í dag.

Hvernig hefur lífið verið eftir Biggest Loser?

„Það hefur verið mjög gaman hjá mér. Ég eignaðist fullt af vinum í sjónvarpsþáttunum og hef notið lífsins upp á nýtt eftir þættina. Ég er til dæmis farinn að deita aftur. Það kom mér verulega á óvart hversu vinsælir þættirnir urðu og ég er ennþá að fá viðbrögð frá fólki þar sem það segir mér hversu gaman fólk hafði af þáttunum. Fólk hefur samglaðst mér innilega.“

Þór segir að þetta hafi líka verið erfitt og það hafi skipst á skin og skúrir. Hann segir að það sé erfitt þegar vigtin sveiflist til en þegar hann horfir yfir heildina er hann ánægður með árangurinn. Þór léttist um 49 kíló í Biggest Loser Ísland. Þegar hann er spurður að því hvort hann hafi náð að halda sér í formi segir hann svo vera að mestu leyti.

„Það var örlítið of gaman hjá mér í sumar og ég þyngdist um átta kíló. Ég ætla samt ekki að láta það eyðileggja fyrir mér og stefni á að losa mig við þau á næstunni. Fókusinn minn er á það að halda áfram og missa ekki móðinn. Svo er ágætt að muna að lífið er ekki fullkomið.“

Þegar Þór er spurður hvað hann hafi lært af þátttöku sinni í Biggest Loser Ísland segist hann hafa byrjað að trúa á sjálfan sig á ný. „Ég lærði að trúa því að ég gæti komist í form og gæti orðið hamingjusamur á ný. Það var í raun ekki hreyfingin og mataræðið sem var erfiðast heldur að ná tökum á huganum og hætta að efast. Í þáttunum öðlaðist ég von á ný. Í dag sé ég að langtímaframi gerist bara í höfðinu á manni og það að losna við höftin var mikill sigur fyrir mig.“

Finnst þér þátttaka í sjónvarpsþáttunum hafa gert líf þitt betra?

„Já, þetta gjörbreytti lífi mínu. Það hefur ekki komið sá dagur að ég hafi séð eftir því að hafa tekið þátt í þessum sjónvarpsþáttum. Þetta var mun betra en ég hefði nokkurn tímann getað látið mig dreyma um.“

HÉR er hægt að lesa viðtal við hann

Thor Jónsson náði miklum árangri í Biggest Loser Ísland.
Thor Jónsson náði miklum árangri í Biggest Loser Ísland.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál