Brynhildur Aðalsteinsdóttir þarf minni svefn eftir að hún byrjaði í Lífsstílsbreytingu Smartlands og Sporthússins. Hún er líka hætt að vakna dauðþreytt á morgnana.
Á dögunum fóru stelpurnar í fitumælingu og vigtun hjá Lilju Ingvadóttir, einkaþjálfara í Sporthúsinu, sem sér um að þjálfa þær í átakinu. Þar kom ýmislegt merkilegt í ljós.