Anna Eiríksdóttir leikfimisdrottning í Hreyfingu er búin að setja saman flotta æfingalotu sem styrkir og mótar afturendann svo um munar.
„Gerðu allar æfingarnar 20 sinnum hægra megin og endurtaktu þetta svo allt vinstra megin. Mjög flott að gera þessa æfingalotu 2-3 sinnum í viku,“ segir Anna.
Hún segir að þetta séu mjög góðar æfingar sem hægt er að gera heima hjá sér eftir göngutúrinn, fjallgönguna, hjólaferðina eða útihlaupið. Nú eða bara eitt og sér.
„Það þarf ekki neina sérstaka upphitun áður en þessi æfingalota er framkvæmd og því hægt að gera hana hvenær sem er, hvar sem er,“ segir hún.