Finnst bústaður Bjarkar hlægilega ódýr

Björk Guðmundsdóttir.
Björk Guðmundsdóttir. AFP

Daily Mail fjallar um sumarbústaðarsölu Bjarkar Guðmundsdóttur. Blaðamönnum vefmiðilsins finnst bústaðurinn allt of ódýr.

Smartland Mörtu Maríu sagði frá því í gær að sumarbústaður Bjarkar við Þingvallavatn væri kominn á sölu en ásett verð á honum er 28 milljónir. Á íslenskan mælikvarða þykir það svo sem ekkert ódýrt fyrir sumarbústað en miðað við staðsetningu er verðið frekar sanngjarnt. Sumarbústaðurinn er heldur ekki splunkunýr heldur byggður 1965 og mögulega þarfnast hann einhvers viðhalds. Í bústaðnum eru tvö herbergi og upprunalegar innréttingar.

HÉR er hægt að lesa frétt Daily Mail í heild sinni.

Sumarbústaður Bjarkar Guðmundsdóttur.
Sumarbústaður Bjarkar Guðmundsdóttur.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál