Það er allt að gerast hjá hjartaknúsaranum Patrick Dempsey en hann er nýskilinn, hættur í þáttunum Grey's Anatomy og nýbúinn að setja húsið sitt á sölu.
Dempsey og fyrrverandi konan hans settu húsið sitt nýverið á sölu. Ásett verð er tveir milljarðar króna.
Húsið var hannað af kanadíska arkitektinum Frank Gehry. Myndir af eigninni birtust á heimasíðu Variety.