Rut Káradóttir vinnur heima með manninum sínum á daginn og notar eigið heimili sem tilraunaverkefni. Hún er búin að vera með sömu eldhúsinnréttingu síðan hún flutti inn 1999. Með því að skipta um aukahluti og mála veggi er heimilið aldrei eins. Rut notar bílskúrinn sinn heldur ekki fyrir bíl heldur fyrir aukahlutina sem hún skiptir reglulega út.