Málning getur breytt heimilinu á hressilegan hátt. Hér má sjá hvernig hönnunarstofan Egue y Seta notar liti á heillandi hátt í þessari skemmtilegu íbúð í Barcelona.
Íbúðin er hvítmáluð í grunninn en fallegir litir eru notaðir til að brjóta upp rýmið. Hér er ekki verið að vinna með það að mála einn vegg í lit eða allt herbergið heldur eru litir notaðir svolítið eins og listaverk. Guli liturinn kemur sterkur inn í eldhúsinu en hann á líka heima í stofunni eins og hér sést.
Málning er ákaflega sniðugur efniviður upp á það að gera að hægt er að breyta alveg um stemmningu á heimilinu með málningu án þess að það kosti of mikla peninga.